Viðreisn í sókn
Nýjustu tölur frá könnun okkar sem framkvæmd var dagana 8. til 14. nóvember 2024 sýna:
Spurt var:
Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?
Af þeim sem tóku afstöðu þá myndu 22,4% kjósa Samfylkinguna, 21,5% Viðreisn, 15,5% Miðflokkinn, 12,0% Sjálfstæðisflokkinn, 10,2% Flokk fólksins, 5,6% Framsóknarflokkinn, 5,4% Ssíalistaflokkinn, 3,4% Pírata, 2,4% Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, 1,0% Lýðræðisflokkinn, og 0,6% Ábyrga framtíð.
Mynd 1. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu.
Vikmörk – 95% Öryggisbil
Mynd 2. Vikmörk fyrir fylgi flokka miðað við 95% öryggisbil.
Fylgi Viðreisnar eykst marktækt á milli vikna, úr 17,1% í 21,5%. Fylgi Pírata minnkar marktækt úr 5,7% niður í 3,4%. Ekki er marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar og eru þessir flokkar markækt stærri en allir aðrir flokkar.
Mynd 3. Þróun á fylgi flokka á milli vikna.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 8 til 14. nóvember 2024
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2600 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 52%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.