Íslenska Ánægjuvogin – rangt layout

Íslenska ánægjuvogin

Því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækisins eru, þeim mun betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um.

Íslenska ánægjuvogin er frábær mælikvarði á ánægju, tryggð, væntingar og ímynd samanborið við samkeppnisaðila og hafa niðurstöður hennar skapað sér sess í almennri stefnumótun fyrirtækja á Íslandi.

islenska anaegjuvogin

Samræmdar mælingar á ánægju

Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina og frammistöðu fyrirtækja á milli ára í samanburði við helstu samkeppnisaðila og hefur verið mæld á Íslandi síðan 1998.

Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósents. Prósent mælir ánægju almennings regulega yfir árið og eru úrslit og niðurstöður mælinga fyrra árs er kunngjörð árlega, fljótlega eftir áramót.  

Að vinna Íslensku ánægjuvogina er eftirsóknavert fyrir fyrirtæki og er mikill heiður að vera í fyrsta sæti á sínum markaði. Þau fyrirtæki sem vinna sinn flokk fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar í sínu markaðsefni sem og njóta heiðursins. 

Íslenska ánægjuvogin sjálf samanstendur af þremur spurningum:

  • Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með reynslu þína af fyrirtækinu?
  • Hugleiddu allar væntingar þínar til fyrirtækisins annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir fyrirtækið væntingar þínar?
  • Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna fyrirtæki. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtækið]?

Í heildarskýrslunni er m.a. að finna niðurstöður átta spurninga til viðbótar, greindar eftir bakgrunnsbreytum og sýnd þróun á milli ára.

Samanburður við önnur fyrirtæki á Íslandi

Þróun á milli ára

Upplýsingar um hvaða þættir hafa áhrif á ánægju

Opin svör fyrir þitt fyrirtæki og önnur fyrirtæki á markaðnum

Af hverju ætti fyrirtækið að kaupa skýrsluna?

  • Komast að því hvaða þættir hafa áhrif á ánægju viðskiptavina (eins og vægi verðs, þjónustu og ímyndar) og hvaða þætti fyrirtækið þarf að leggja áherslu á.
  • Sjá hvar fyrirtækið stendur í samanburði við samkeppnisaðila.
  • Sjá hvaða hópar eru ánægðir eða óánægðir (eftir kyni, búsetu, aldri o.fl.)
  • Komast að helstu ástæðum fyrir afstöðu einstaklinga til viðkomandi fyrirtækis og samkeppnisaðila sem byggist á opnum svörum.

Niðurstöður hvers fyrirtækis byggjast á um 200-1.000 svörum, en mælt er nokkrum sinnum yfir árið. Fyrirtækjunum sem eru mæld býðst að kaupa ítarlega skýrslu með niðurstöðum ellefu spurninga eftir bakgrunnsbreytum (kyni, aldri, búsetu, tekjum og menntun). Í skýrslunni fær fyrirtækið samanburð við helstu samkeppnisaðila sem og markaðinn í heild. Einnig er að finna opin svör fyrir öll fyrirtækin á markaðnum og greiningu á þeim.

Við kaup á skýrslu fylgir með kynning eða fundur um túlkun niðurstaðna með ráðgjafa frá Prósent. 

Hvert prósent skiptir máli

Þegar kemur að ánægju viðskiptavina og tryggð þá skiptir hvert prósent máli í nútíma samkeppnisumhverfi.

ánægjuvogin 2022

Stoltir sigurvegarar Ánægjuvogarinnar

Að vinna Íslensku ánægjuvogina er eftirsóknarvert og frábær fjöður í hattinn. Hjá fjölda fyrirtækja er hún mælikvarði á afrakstur mikillar vinnu þar sem starfsfólk leggst á eitt við að eignast ánægðustu viðskipavinina. Hér getur að líta fulltrúa fyrirtækjanna sem sigruðu árið 2022.

Ánægjuvogin í kynningarefni

Hér getur að líta sýnishorn af því hvernig sigurvegarar nýta sér heiðurinn sem hlýst af því að vinna Íslensku ánægjuvogina, í sínu kynningarefni.

Íslenska ánægjuvogin í kynningrefni fyrirtækja

Meðmæli

Prósent hefur séð um framkvæmd Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir Stjórnvísi síðastliðin ár. Samstarfið hefur verið einstaklega gott og fagmannlegt og hefur verið ánægjulegt að sjá hvernig Ánægjuvogin hefur stækkað í gegnum árin og hversu mikilvægur mælikvarði hún er orðin í íslensku atvinnulífi.
gunnhildur
Gunnhildur Arnardóttir
Stjórnvísi