Hvert prósent skiptir máli

Prósent býður upp á alhliða þjónustu á sviði markaðsrannsókna.
Hlutverk okkar er að hjálpa þér að ná auknum árangri með því að taka betri ákvarðanir byggðar á mælingum og viðhorfi þjóðarinnar, stjórnenda, viðskiptavina eða starfsfólks.

prosent dashboard laptop hero

Þjónusta

Við bjóðum upp á bæði megindlegar (quantitative) og eigindlegar (qualitative) rannsóknir. Vöruframboð okkar samanstendur af bæði stöðluðum og sérhönnuðum lausnum sem byggja á viðurkenndum rannsóknaraðferðum.

Þjónusturannsóknir

Meginmarkmið þjónusturannsókna er að mæla ánægju og tryggð viðskiptavina og finna út hvaða þættir hafa þar mest áhrif.

NÁNAR

Vörumerkjamælingar

Ímynd og orðspor fyrirtækja er líklega verðmætasta eign þeirra. Við bjóðum upp á ýmsar leiðir til þess að mæla ímynd og orðspor.

NÁNAR

Mannauðsrannsóknir

Ef þú vilt að starfsfólk þitt mæli með vinnustaðnum þínum þá mælum við með vinnustaðagreiningu og/eða púlsmælingum.

NÁNAR

Vöruupplifun

Við hjálpum þér að gera vöruþróun markvissari. Svörum til dæmis spurningum varðandi það hver markhópurinn er, hvaða eiginleikar skipta máli og hvernig best sé að hátta verðlagningu.

NÁNAR

Rýnihópar

Rýnihópar eru frábær leið til að fá innsýn í hugarheim markópsins eða til að móta spurningar fyrir megindlega rannsókn.

NÁNAR

Viðhorf þjóðarinnar

Við keyrum reglulega spurningavagna þar sem þjóðin er spurð álits. Þar er um að ræða hóp Íslendinga, sem endurspegla lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.

NÁNAR

Viðhorf stjórnenda

Fáðu álit eða skoðun lykilstjórnenda með því að kaupa spurningar í stjórnendavagninum sem keyrður er út reglulega.

NÁNAR

Ánægjuvogin

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi en er framkvæmd af okkur í Prósent. Markmiðið er að gera samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina fyrirtækja.

NÁNAR

NPS meðmælaskor

Meðmælaskor, NPS, mælir upplifun neytenda og getur gefið innsýn varðandi vöxt fyrirtækis. NPS er stutt könnun sem er venjulega send út til allra viðskiptavina.

NÁNAR

Fréttir

Áhugaverðar niðurstöður úr könnunum Prósents.

Meðmæli

Við höfum unnið með fjölda fyrirtækja og stofnana.

  • Edda Blumenstein

    Edda Blumenstein

    beOmni

    Sem ráðgjafi í stefnumótun er mikilvægt að kynnast markhópunum og vera ávallt skrefi á undan við að uppfylla þeirra þarfir. Ég hef unnið rýnihópa og rannsóknir með Prósent og búa þau yfir mikilli þekkingu, reynslu og skilningi á neytendahegðun. Þau eru gagnrýnin á aðferðir og framkvæmd. Þar fyrir utan eru þau einfaldega snör og lipur í samskiptum.

  • Hildur Norðfjörð

    Hildur Norðfjörð

    ISAVIA

    Við völdum Prósent til að vinna með okkur að yfirgripsmikilli rannsókn fyrir stafræna vegferð Keflavíkurflugvallar og sáum svo sannarlega ekki eftir því. Fagmennska, alúð og hugmyndaauðgi einkenndi samstarfið við þau og get ég hiklaust mælt með þeim.

  • Guðmundur Óskarsson

    Guðmundur Óskarsson

    Vís

    Samtarf með Prósent hefur reynst okkur hjá VÍS mjög vel og eru öll vinnubrögð fagmannleg. Aðferðafræðin er ávallt sett í forgrunn en praktísk nálgun og innsýn í viðangsefnið hefur hjálpað okkur að fá meiri dýpt og betri skilning á markaðnum sem við notum óspart í allri okkar stefnumótandi vinnu.

  • Björgheiður Albertsdóttir

    Björgheiður Albertsdóttir

    Mannvit

    Heilsa og vellíðan starfsfólksins okkar er okkur mikilvægt málefni og því skiptir miklu máli að getað tekið stöðuna á okkar fólki með vinnustaðagreiningu. Við kynntumst Prósent fyrst þegar við vorum að vinna að ánægjukönnun viðskiptavina og sáum þá hvað mælaborðið og hvað gögnin eru að birtast á flottan og notandavænan hátt. Mælaborðið í vinnustaðagreiningunni hjálpaði okkur mikið við að gera okkur grein fyrir stöðu mála hjá okkur og hvað það er sem raunverulega skiptir starfsfólkið okkar máli.

  • Guðrún Einarsdóttir

    Guðrún Einarsdóttir

    ON

    Við höfum nýtt þjónustu Prósent og sérstaklega þegar kemur að því að vita stöðuna okkar á samkeppnismarkaðinum. Að auki hafa þau séð um þjónustukannanir okkar og með framsetningu á mælaborði erum við fljót að finna það sem leggja þarf áherslu á og hvað megi betur fara. Þessar rannsóknir notum við stöðugt til að vinna í að vera með ánægðustu viðskiptavinina á okkar markaði. Hjá Prósent fáum við persónulega þjónustu og góða fagþekking á okkar þörfum.

  • Ella Sigga

    Ella Sigga

    Alvotech

    Ég hef nýtt mér þjónustu Prósent á þeim vinnustöðum sem ég hef verið hjá sl. 6 ár, HR, Efla og núna hjá Alvotech. Niðurstöðurnar með fylgnigreiningu veitir þeim hjá Prósent mikið forskot, því kerfið sem stuðst er við sýnir með afgerandi hætti hvaða þættir hafa mestu áhrif á starfsánægju og að fá niðurstöður niður á deildir og geta kynnt niðurstöður með hverjum stjórnanda fyrir sig er nauðsynleg. Starfsfólk Prósent er metnaðarfullt, bregst hratt við og það sem er náttúrulega best er hversu góða ráðgjöf þau veita þegar niðurstöður liggja fyrir.

  • Magnús Árnason

    Magnús Árnason

    NOVA

    Við höfum nýtt okkur þjónustu Prósent í mörg ár og ein helsta ástæðan fyrir vali okkar á þeim er sveigjanleiki þjónustu, þekking og fagleg meðhöndlun gagna. Mælaborð Prósent gerir okkur kleift að rýna vel í niðurstöður og greina eftir bakgrunnsbreytum með gagnvirkum hætti sem hjálpar okkur að taka betri ákvarðanir. Það er okkur auðvelt og ánægjulegt að mæla með Prósent.

Íslenska ánægjuvogin

Er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd rannsóknar í höndum Prósent.  Ánægja viðskiptavina fyrir ákveðin fyrirtæki er mæld yfir heilt ár og eru niðurstöður kunngjörðar árlega með verðlaunaafhendingu.
Það þykir mjög eftirsóknarvert að hljóta viðurkenningu Íslensku ánægjuvogarinnar. 

starsfólk 16x9 des2023 med res

Við viljum heyra í þér

Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt frekari upplýsingar um þjónustuna okkar.