Fleiri útkeyrð í lok vinnudags en 2025

Og mörg verkefni og fáliðun sem ástæða streitu.

Fleiri eru útkeyrð í lok vinnudags en árið 2025 og fleiri nefna of mörg verkefni og fáliðun sem ástæðu streitu, samkvæmt kulnunarrannsókn Prósents. 10% mælast með einkenni kulnunar, sem er svipað hlutfall og undanfarin ár.Að meðaltali er fólk útkeyrt í lok vinnudags 68 vinnudaga á ári, samanborið við 61 dag árið 2025. Hækkunin er marktæk. Hlutfall þeirra sem eru útkeyrð á hverjum degi hefur aldrei mælst hærra, 14%, samanborið við 9% árið 2025.

Fleiri nefna of mörg verkefni og fáliðun

Þau sem finna fyrir streitu- og álagseinkennum tengdum starfi nokkrum sinnum í mánuði eða oftar voru spurð hvaða þættir gætu skýrt einkennin. Marktækt fleiri nefna of mörg verkefni en árið 2025 (45% samanborið við 37%) og fáliðun (40% samanborið við 33%). Of lág laun eru áfram meðal algengustu ástæðna, 42%.

ástæður streitu kulnun prósent 2026

Örmögnun meiri hjá yngra fólki

Tilfinningaleg örmögnun mælist meiri í aldurshópunum undir 45 ára (60–66 vinnudagar á ári) en í eldri aldurshópum (22–46 dagar). Ekki er marktækur munur á milli aldurshópanna undir 45 ára.

tilfinningaleg örmögnun eftir aldri kulnun prósent 2026

Kulnun helst á svipuðu bili

10% mælast með einkenni kulnunar árið 2026, sem er ekki marktæk breyting frá 2025, og hlutfallið hefur verið á bilinu 8–13% frá 2020. 39% flokkast virk í starfi, marktækt fleiri en árið 2020 (30%) en svipað hlutfall og síðustu ár. 16% fólks á aldrinum 25–34 ára mælast með einkenni kulnunar.

hlutfall með einkenni kulnunar

Einungis 39% starfsfólks á Íslandi teljast vera virk á vinnumarkaði skv. Maslach-kulnunarmódelinu (MBI).

Út frá svörunum er fólki skipt í fimm hópa eftir því hversu oft það er útkeyrt, hversu mikinn áhuga það hefur á vinnunni og hvernig það metur eigin árangur í starfi (Leiter og Maslach, 2016). Auk þeirra 39% sem eru virk í starfi og 10% sem mælast með einkenni kulnunar telja 27% sig koma litlu til leiðar en eru hvorki útkeyrð né áhugalaus, 20% eru oft útkeyrð en hvorki áhugalaus né ósátt við eigin frammistöðu og 5% eru áhugalaus gagnvart vinnunni en ekki útkeyrð.


Kulnunarflokkar 2026
(Leiter og Maslach, 2016). Samtalan er 101% vegna námundunar.

heildarmynd kulnun 2026

Um rannsóknina

Prósent hefur mælt kulnun árlega frá 2020 með 16 spurningum úr Maslach-kulnunarmódelinu (MBI). Spurt er um þrjú svið: þreytu og örmögnun vegna vinnu, áhuga og tengsl við vinnuna og mat fólks á eigin árangri í starfi. Byggt er á um 900 svörum frá fólki 18 ára og eldra á vinnumarkaði um allt land og er svarhlutfall um 50%. Gögnin eru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. Svör um tíðni eru umreiknuð í fjölda vinnudaga á ári, frá 0 (aldrei) til 225 (daglega)

Kynning á niðurstöðum

Ítarlegri niðurstöður verða kynntar á opnum fyrirlestri fimmtudaginn 15. október kl. 9.00–9.45.  Skráning hér

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.