Kulnun Íslendinga árið 2026
Prósent kynnir niðurstöður fyrir árið 2026 um kulnun Íslendinga á vinnumarkaði.
Fimmtudaginn 15. október 2026 frá 09.00-09.45
Vísbendingar um aukið vinnuálag á sama tíma og tortryggni gagnvart starfinu minnkar
Fleiri eru útkeyrð í lok vinnudags en nokkru sinni frá 2020 og fleiri nefna of mörg verkefni og fáliðun. Á sama tíma dregur úr tortryggni og afköst aukast.
- 14% segjast útkeyrð í lok vinnudags á hverjum degi, samanborið við 9% árið 2025. Mælingin í heild samsvarar 68 vinnudögum á ári, sú hæsta frá 2020, og hækkunin milli ára er marktæk.
- Of mörg verkefni (45%) og fáliðun (40%) eru oftar nefnd sem ástæður streitu og álags en árið 2025 (37% og 33%).
- Tortryggni gagnvart starfinu lækkar úr 44 vinnudögum á ári í 35, sem er lægsta mæling frá 2023. Lækkunin er mest hjá konum, úr 42 í 30.
- 10% mælast í kulnun og 20% til viðbótar flokkast sem ofþreytt. Hlutfall í kulnun hefur verið á bilinu 8–13% frá 2020.
- 16% fólks á aldrinum 25–34 ára mælast í kulnun, samanborið við 11% árið 2025.
Um Rannsóknina
Frá árinu 2020 hefur Prósent unnið að því að varpa ljósi á kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði. Með notkun 16 spurninga úr Maslach kulnunarmódelinu (The Maslach Burnout Inventory, MBI) hefur verið unnið að því að greina þetta flókna fyrirbæri. MBI er fyrsta vísindalega þróaða mælikvarðinn fyrir kulnun og er notaður víða um heim. Rannsóknin mælir þrjár mikilvægar víddir: tilfinningalega örmögnun, tortryggni og afköst í starfi.
Árið 2024 var bætt við nýjum spurningum til að kanna hvaða starfstengdu þættir gætu verið ástæður streitu og álags, auk þess að skoða hvort að aðrir þættir í lífinu geti haft áhrif. Hægt verður að skoða þróun á milli tímabila í kynningunni.
Hver spurning er greind eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntunarstigi, svo eitthvað sé nefnt.
Prósent hefur framkvæmt þessa rannsókn í janúar ár hvert síðan 2020, og nú eru komin samanburðargögn frá 2020 til 2026 – sjö ára dýrmæt saga sem gefa innsýn á kulnun Íslendinga á vinnumarkaðinum.
Rannsóknin byggir á um 900 svörum frá einstaklingum 18 ára og eldri á vinnumarkaðinum um allt land.
Skráning á fyrirlesturinn - fjarfundur.
Skráðu þig hér fyrir miðvikudaginn 14. október kl 22.00 og við munum senda þér fjarfundarboð (teams). Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents mun fara yfir niðurstöður.
Hafa samband
Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: prosent@prosent.is