Samfylkingin með mesta fylgið og lítil breyting á milli vikna

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 18. til 24 október 2024 var spurt:

  • Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?

Af þeim sem tóku afstöðu þá myndu 24,2% kjósa Samylkinguna, 16,1% Miðflokkinn, 15% Viðreisn, 13,3 Sjálfstæðisflokkinn, 11,4% Flokk fólksins, 5,8% Framsóknarflokkinn, 5,8% Pírata, 4,3% Sósíalistaflokkinn, 2,4% Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, 1,1% Lýðræðisflokkinn og 0,4% Ábyrga framtíð.

vika 4 fylgi flokka vikmörk vika 4

Mynd 1 Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu 

Það er enginn flokkur sem hækkar eða lækkar marktækt á milli vikna. Það verður áhugavert að sjá hvernig fylgi Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks mun þróast á næstu vikum en þeir skipta um sæti á milli vikna , þó ekki marktækur munur sé á milli vikna og ekki marktækur munur á fylgi þeirra.
Ábyrg framtíð er komin inn í þessa mælingu og mælist með 0,4%.

Þróun vika 2 3 og 4 kosningar fylgi flokka

Mynd 2.  Samanburður á fylgi flokka á milli vikna. Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 18. til 24. október 2024
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.500 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.