
66% þjóðarinnar hefur aldrei farið í sjósund
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 14. til 21. október 2024 var spurt:
Stundar þú sjósund á Íslandi?
Mynd 1 Stundar þú sjósund? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu.
1% svarenda segist fara reglulega í sjósund, 2% fara 3-11 sinnum á ári, 4% fara sjaldan eða 1-2 sinnum á ári. 27% hefur prófað að fara í sjósund en segist ekki stunda það og 66% hefur aldrei prófað að fara í sjósund.
Mynd 2 Stundar þú sjósund? Niðurstöður sundurliðaðar.
Marktækt fleiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni stunda sjóböð.
Mynd 3 Stundar þú sjósund? Niðurstöður eftir búsetu.
Ekki er marktækur munur eftir kyni.
Mynd 4 Stundar þú sjósund? Niðurstöður eftir kyni.
Marktækt fleiri á aldrinum 45-54 ára en 65 ára og eldri stunda sjóböð.
Mynd 5 Stundar þú sjósund? Niðurstöður eftir aldri.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 14. til 18. október 2024
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.100 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 52%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.