
Íslenska ánægjuvogin 2024
Þann 16. janúar 2025 voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2024 kynntar og er þetta tuttugasta og sjötta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.
Ánægjuvogin verðlaunar þau fyrirtæki sem skara fram úr í ánægju á sínum markaði. Þau fyrirtæki sem vinna á sínum markaði fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar í sínu markaðsefni sem og að njóta
heiðursins.
Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 48 fyrirtæki í 15 atvinnugreinum, þar af eru tíu fyrirtæki sem ekki hafa verið áður. Nokkur munur er á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og eru einkunnir frá 58,6 til 84,4 af 100 mögulegum.
indó sigurvegarinn í ár
indó er sigurvegari Ánægjuvogarinnar árið 2024 með 84,4 stig og er þetta í fyrsta skiptir sem niðurstöður hafa verið birtar fyrir bankann. Í öðru sæti og einungis tveimur stigum frá er Dropp með 84,2 stig. Dropp var sigurvegari Ánægjuvogarinnar í fyrra.
Tíu fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði
Gyllta merkið er einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina á viðkomandi markaði, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina. Þessir sigurvegarar mega þar af leiðandi segjast vera með ánægðustu viðskiptavinina.
Sigurvegarar Íslensku ánægjuvogarinnar 2024 – Gullhafar
Indó, 84,4 stig meðal banka
Dropp 84,2 stig meðal póstþjónustufyrirtækja
Costco eldsneyti 81,0 stig meðal eldsneytis- og hraðhleðslustöðva
IKEA 78,2 stig meðal húsgagnaverslana
Nova 77,9 stig meðal fjarskiptafyrirtækja
Krónan 74,1 stig meðal matvöruverslana
A4 73,8 stig meðal ritfangaverslana
Icelandair 72,3 stig meðal flugfélaga
BYKO 71,5 stig meðal byggingavöruverslana
Sjóvá 69,1 stig meðal tryggingafélaga
Vinningshafar í sinni atvinnugrein 2024 – Blátt merki
Efstu fyrirtæki á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Lyfjaver 76,6 stig meðal apóteka
ELKO 76,2 stig meðal raftækjaverslana
Orka náttúrunnar 69,1 stig meðal raforkusala
Smáralind 65,2 stig meðal verslunarmiðstöðva
Kvartanir hafa áhrif á tryggð viðskiptavina
Tvær spurningar um kvartanir eru í líkaninu. Annars vegar er spurt hvort að viðskiptavinir hafi kvartað eða haft ástæðu til að kvarta og hins vegar um hversu ánægðir þeir voru með úrlausn kvörtunarinnar. Samkvæmt bandarísku ánægjuvoginni hefur þessi málaflokkur mikil áhrif á tryggð viðskiptavina og því fleiri sem hafa kvartað því minni er tryggðin. Niðurstöður hérlendis sýna að hlutfall þeirra sem kvörtuðu var 5% en 18% höfðu ástæðu til að kvarta en gerðu það ekki.
Breyting á upphafsspurningu í takt við breytta tíma
Í takt við breytta tíma og í samræmi við evrópsku (ECSI) og bandarísku ánægjuvogina (ACSI) var ákveðið að breyta upphafsspurningu um hvar svarendur eru í viðskiptum. Fyrir breytingu voru þátttakendur spurðir í hvaða matvöruverslun þeir fari oftast og svöruðu ánægjuvogarspurningum fyrir viðkomandi verslun. Árið 2024 voru þátttakendur í staðinn spurðir í hvaða verslunum þeir hafi keypt matvöru á síðastliðnum þremur mánuðum og svöruðu þeir svo handahófskennt fyrir eina af þeim verslunum. Upphafsspurningin er mismunandi eftir mörkuðum, til dæmis er spurt um kaup á raftækjum á síðastliðnum tveimur árum,
og á bankamarkaði eru þátttakendur spurðir hjá hvaða banka þeir eru með virkan bankareikning, sparnaðarreikning eða bankalán. Þess má geta að 46% Íslendinga eru í viðskiptum við fleiri en einn banka.
Um framkvæmd rannsóknar
Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni árið 2024. Gögnum var safnað frá apríl til desember árið 2024. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents á um 3.000 manna úrtak á hverjum markað. 175 til 1000 svör bárust fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.
Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:
- Á heildina litið, hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
- Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti
uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar? - Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?
Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju.

Vinningshafar Íslensku ánægjuvogarinnar 2024
Merki Íslensku ánægjuvogarinnar
Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á https://www.stjornvisi.is/is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.