46% með miklar áhyggjur af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi


Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana  29. janúar til 16. febrúar 2026 var spurt að eftirfarandi:
Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi?

Af þeim sem tóku afstöðu hafa 46% miklar áhyggjur af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi, 18% hafa hvorki miklar né litlar áhyggjur og 36% hafa litlar áhyggjur.

bandaríkin eignist grænland allir

Mynd 1. Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi?Svör þeirra sem tóku afstöðu.


Marktækt fleiri karlmenn en konur hafa litlar áhyggjur.

image

Mynd 2 Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi? Svör eftir kyni.

Þau sem myndu kjósa Miðflokkinn hafa marktækt minni áhyggjur en þau sem kjósa aðra flokka.
 

bandaríkin eignist grænland fylgi flokka

Mynd 3. Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi? Svör eftir fylgi flokka.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 29. janúar til 16. febrúar 2026.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.