Fleiri óánægðir en ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana  29. janúar til 16. febrúar 2026 var spurt að eftirfarandi:
Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar?

Af þeim sem tóku afstöðu eru 37% ánægð með störf ríkisstjórnarinnar, 18% eru hvorki ánægð né óánægð og 45% eru óánægð. 

image

Mynd 1 Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar? Svör þeirra sem tóku afstöðu.


Karlmenn eru marktækt óánægðari með störf ríkisstjórnarinnar en konur.

image

Mynd 2 Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar? Svör eftir kyni


Ekki er marktækur munur eftir búsetu.

image

Mynd 3 Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar? Svör eftir búetu,


65 ára og eldri eru marktækt ánægðari með störf ríkisstjórnarinnar en aðrir aldurshópar.

image

Mynd 4 Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar? Svör eftir búetu.

Þau sem myndu kjósa ríkisstjórnarflokkana; Samfylkinguna, Flokk fólksins og Viðreisn, eru marktækt ánægðari með störf ríkisstjórnarinnar en þau sem myndu kjósa aðra flokka.  Þau sem eru myndu kjósa Samfylkinguna eru marktækt ánægðari en þau sem myndu kjósa Viðreisn.  Þau sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokkinn og Framsókn eru marktækt óánægðari með störf ríkisstjórnarinnar en þau sem myndu kjósa aðra flokka. 

stuðningur ríkisstjórn eftir flokku

Mynd 5. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar? Svör eftir fylgi flokka.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 29. janúar til 16. febrúar 2026.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.