Viðhorf til ráðherraskipta Ragnars Þórs og Ingu Sæland

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana  29. janúar til 16. febrúar 2026 var spurt að eftirfarandi:

Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra?

Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra?

Ráðherraskipti Ragnar Þórs Ingólfssonar

38% eru ánægð með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra, 40% eru hvorki ánægð né óánægð og 22% eru óánægð.

Ráðherraskipti Inga Sæland

19% eru ánægð með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra, 42% eru hvorki ánægð né óánægð og 39% eru óánægð.

ragnar inga samanburður

Mynd vinstra megin. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra? Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Mynd hægra megin.  Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra? Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Ráðherraskipti Ragnar Þórs Ingólfssonar – fylgi flokka

76% af þeim sem myndu kjósa Flokk fólksins eru ánægð með ráðherraskipun Ragnars og eru það marktækt fleiri en þau sem myndu kjósa aðra flokka. 

ragnar ráðherraskipti fylgi

Mynd 3. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra? Svör eftir fylgi flokka.



Ráðherraskipti Inga Sæland  – fylgi flokka


62% af þeim sem myndu kjósa Flokk fólksins er ánægð með ráðherraskipun Ingu Sælands og eru það marktækt fleiri en þau sem myndu kjósa aðra flokka. 

inga ráðherraskipti fylgi flokka

Mynd 4. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra? Svör eftir fylgi flokka.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 29. janúar til 16. febrúar 2026.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.