
Samfylkingin með mesta fylgið
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 21. janúar til 16. febrúar 2026 var spurt að eftirfarandi:
Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?
Af þeim sem tóku afstöðu þá myndu 30,1% kjósa Samfylkinguna, 19,6% Miðflokkinn, 13,7% Sjálfstæðisflokkinn, 13,5% Viðreisn, 7,7% Flokk fólksins, 5,9% Framsóknarflokkinn, 3,6% Pírata, 3,3% Vinstri græn 2,4% Sósíalistaflokkinn og 0,2% Lýðræðisflokkinn.

Mynd 1. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Vikmörk – 95% Öryggisbil

Mynd 2. Vikmörk fyrir fylgi flokka miðað við 95% öryggisbil.
Niðurstöður eftir bakgrunni
Fylgi Samfylkingarinnar er marktækt meira hjá konum en körlum eða 34% á móti 26%. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá körlum en konum, eða 25% á móti 13%.

Mynd 3. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir kyni.
Fylgi Viðreisnar er marktækt meira hjá einstaklingum á aldrinum 35 til 54 ára en 65 ára og eldri og 25-34 ára. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá 25 til 34 ára en 18 til 24 ára. Fylgi Flokks fólksins er marktækt meira hjá 55 ára og eldri en hjá þeim sem yngri eru. Fylgi Pírata er marktækt meira hjá 18-24 ára en hjá þeim sem eru 35 ára og eldri.

Mynd 4 . Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir aldri.
Fylgi Samfylkingarinnar er marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík en hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélagi Reykjavíkur og á landsbyggðinni. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni eða í Reykjavík. Fylgi Viðreisnar er marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni. Fylgi Flokk fólksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa í Reykjavík eða nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveiarfélögum Reykjavíkur og fylgi Sósíalistaflokksins er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og á landsbyggðinni.

Mynd 5 . Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir búsetu.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 21. janúar til 16. febrúar 2026.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 3.900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.