
Uppskeruhátíð Íslensku ánægjuvogarinnar 2025
Fimmtudaginn 22. janúar 2026, kl. 15:00-16:00 veitir Stjórnvísi viðurkenningar fyrir Íslensku ánægjuvogina fyrir árið 2025.
Viðburðurinn er haldin á Hótel Reykjavík Grand – í Háteigi, Sigtúni 38, 105 Reykjavík og verður í beinu streymi hér.
Dagskrá
15:00 Fundarsetning. Fundarstjóri er Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi og stjórnarformaður Íslensku ánægjuvogarinnar.
15:05 Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents kynnir niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2025, m.a. niðurstöður einstakra fyrirtækja og markaða og breytingar frá fyrri árum. Allir verðlaunahafar sem skora hæst á sínum markaði eignast réttinn til að nota merki Ánægjuvogarinnar í viðurkenningarskyni.

Vinningshafar Íslensku ánægjuvogarinnar 2024.