74% eru hlynnt því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 12. til 29. desember 2025 var spurt að eftirfarandi:

Aðgerðarhópur um brúun umönnunarbilsins hefur lagt til að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur sem aðgerð til að tryggja börnum leikskólapláss eftir að fæðingarorlofi lýkur. 

Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi?

74% eru hlynnt því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi, 18% eru hvorki hlynnt né andvíg og 8% eru andvíg.
 

leikskólar allir

Mynd 1.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi? Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Konur eru marktækt hlynntari því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi en karlar.

leikskólar kyn

Mynd 2.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi? Svör eftir kyni.  

Yngsti aldurshópurinn 18-24 ára er marktækt hlynntari því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi, en aðrir aldurshópar.

leikskólar aldur

Mynd 3.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi? Svör eftir aldri.

leikskólar aldur meðaltal

 Mynd 4.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi? Svör eftir aldri ásamt meðaltali hvers aldurshóps.

Íbúar í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur eru hlynntari því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi, en íbúar á landsbyggðinni.

leikskólar búseta

Mynd 5.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi? Svör eftir búsetu.

Um framkvæmd

Gögnum var safnað frá 12. til 29. desember 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.950 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.