
70% hlynnt því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 12. til 29. desember 2025 var spurt að eftirfarandi:
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi?
70% eru hlynnt því að að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi.

Mynd 1. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Konur eru marktækt hlynntari því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára en karlar.

Mynd 2. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi? Svör eftir kyni.
22% eru andvíg í aldurshópnum 18-24 ára og eru það marktækt fleiri en í öðrum aldurshópum. 75% í aldurshópunum 25-34 ára og 35-44 ára eru hlynnt og eru það marktækt fleiri en í yngsta aldurshópnum, 18-24 ára.

Mynd 3. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára á Íslandi? Svör eftir aldri.
Um framkvæmd
Gögnum var safnað frá 12. til 29. desember 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.950 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.