
Íslenska ánægjuvogin 2025
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025 voru kynntar 22. janúar en þetta er tuttugasta og sjöunda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Íslenska ánægjuvogin verðlaunar þau fyrirtæki sem skara fram úr í ánægju viðskiptavina á sínum markaði. Hægt er að horfa á upptöku af viðburðinum hér.
Nýsköpun og stafræn upplifun einkenna sigurvegarana
Niðurstöður sýna að þau fyrirtæki sem mælast með hæstu ánægju viðskiptavina eiga það sameiginlegt að vera nýskapandi, leggja áherslu á þjónustu og sterka stafræna upplifun, oft á mörkuðum sem hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum.
„Íslenska ánægjuvogin hefur þann tilgang að hvetja íslensk fyrirtæki til að hlúa að ánægju viðskiptavina og veita þeim samræmdan og hlutlausan mælikvarða á frammistöðu sína á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Það er mikill heiður fyrir fyrirtæki að vera hæst á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni og mörg setja sér markmið því tengt“ segir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Íslensku ánægjuvogarinnar og Stjórnvísi.
Í þetta skiptið var skyndibitamarkaður mældur í fyrsta sinn. Til þess að mælast í Íslensku ánægjuvoginni þurfa fyrirtæki að ná ákveðinni stærð og markaðshlutdeild.
indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar annað árið í röð
indó er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2025 með 84,7 stig, hæsta allra fyrirtækja. Þetta er í annað skiptið sem niðurstöður hafa verið birtar fyrir indó og í bæði skiptin hefur fyrirtækið sigrað. Í öðru sæti er Dropp með 83,9 stig, aðeins tæpu einu stigi á eftir. Dropp var sigurvegari Ánægjuvogarinnar árið 2023. Costco eldsneyti var 3. hæsta fyrirtækið með 81,3 stig.
Mikill munur á hæstu og lægstu fyrirtækjum
Það mælist töluverð breidd á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og eru einkunnir frá 60,8 til 84,7 af 100 mögulegum.
„Það er ljóst að ánægja viðskiptavina er ekki föst stærð og það er ekkert sem heitir að hafa áskrift að Ánægjuvoginni. Fyrirtækin þurfa stöðugt að vinna að ánægju viðskiptavina. Á nokkrum mörkuðum má sjá umtalsverðar breytingar á niðurstöðum fyrirtækja milli ára, þar sem sum hafa bætt stöðu sína verulega, á meðan önnur hafa lækkað frá fyrri mælingu.” segir Gunnhildur
Konur á miðjum aldri á landsbyggðinni eru ánægðasti hópurinn
Gögnin sýna fram á ólíka upplifun út frá kyni, aldri og búsetu. Konur á aldrinum 55-64 ára á landsbyggðinni er ánægðasti hópur neytenda á Íslandi en karlmenn 35-44 ára á landsbyggðinni sá óánægðasti.
Vinningshafar Íslensku ánægjuvogarinnar 2024
Um Íslensku ánægjuvogina
Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni 10. árið í röð. Gögnum var safnað frá apríl til desember árið 2025. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents á um 2.000 manna úrtak á hverjum markaði. 175 til 1.000 svör bárust fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á https://www.stjornvisi.is/is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.