1 af hverjum 4 tók ákvörðun á kjördegi
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 6. til 12. júní 2024 voru Íslendingar spurðir eftirfarandi spurninga:
- Hvenær tókst þú ákvörðun um að þú ætlaðir að kjósa frambjóðandann (nafn frambjóðanda sem var kosinn) í forsetakosningunum?
- Kaust þú þann forsetaframbjóðanda sem þér leist best á í embættið eða annan frambjóðanda sem þú taldir líklegri til að vinna kosningarnar?
Hvenær tókst þú ákvörðun um að þú ætlaðir að kjósa frambjóðandann (nafn frambjóðanda sem var kosinn) í forsetakosningunum?
Fjórðungur svarenda tók ákvörðun um hvern þeir ætluðu að kjósa á kjördegi, 24% einum til 6 dögum fyrir
kjördag, 25% einni til fjórum vikum fyrir kjördag og 26% meira en mánuði fyrir kjördag.
Mynd 1 og 2. Hvenær tókst þú ákvörðun um að þú ætlaðir að kjósa frambjóðandann (nafn frambjóðanda sem var kosinn) í forsetakosningunum? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu. Á mynd 2 er búið að sameina valmöguleika.
Einstaklingar á aldrinum 18 til 34 ára og 35 til 54 ára tóku frekar ákvörðun um hvern ætti að kjósa á kjördegi en þau sem eldri eru. Auk þess tóku þau sem kusu Höllu Tómasdóttur frekar ákvörðun um frambjóðanda á kjördegi en þau sem kusu Katrínu Jakobsdóttur eða Baldur Þórhallsson.
Mynd 3 og 4. Hvenær tókst þú ákvörðun um að þú ætlaðir að kjósa frambjóðandann (nafn frambjóðanda sem var kosinn) í forsetakosningunum? Niðurstöður eftir aldri og frambjóðanda sem var kosinn.
Kaust þú þann forsetaframbjóðanda sem þér leist best á í embættið eða annan
frambjóðanda sem þú taldir líklegri til að vinna kosningarnar?
87% svarenda kaus þann sem þeim leist best á í embættið, 11% kusu annan frambjóðanda sem þeir töldu
líklegri til að vinna kosningarnar og 2% svöruðu að hvorugt ætti við.
Mynd 5. Kaust þú þann forsetaframbjóðanda sem þér leist best á í embættið eða annan frambjóðanda sem þú taldir líklegri til að vinna kosningarnar? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu.
Einstaklingar á aldrinum 18 til 34 ára og 35 til 54 ára kusu frekar annan frambjóðanda sem þau töldu líklegri til að vinna en þau sem eldri eru. Þau sem kusu Höllu Tómasdóttur kusu frekar annan frambjóðanda sem þau töldu líklegri til að vinna en þau sem kusu Katrínu Jakobsdóttur, Höllu Hrund Logadóttur, Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr eða aðra frambjóðendur.
Mynd 6 og 7. Kaust þú þann forsetaframbjóðanda sem þér leist best á í embættið eða annan frambjóðanda sem þú taldir líklegri til að vinna kosningarnar? Niðurstöður eftir aldri og frambjóðanda sem
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 6. til 12. júní 2024.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 3.500 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Gögn eru vigtuð til að úrtak endurspegli álit þjóðarinnar. Tekið er tillit til kyns, aldurs og búsetu.
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru
út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar
út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.