Viðurkenningarhafar Sjálfbærniássins 2024
16 fyrirtæki hlutu viðurkenningu Sjálfbærniássins 2024
Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins var haldin í Opna háskólanum þann 4. september 2024 þar sem 16 fyrirtækjum var veitt viðurkenning fyrir góðan árangur í sjálfbærni.
Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni. Þessi mæling er svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og öðrum hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standa Prósent, Langbrók og Stjórnvísi.
Markmið Sjálfbærniássins:
- Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
- Hvetja íslensk fyrirtæki til að leggja enn meiri áherslu á sjálfbærni.
- Hjálpa fyrirtækjum að skilja mikilvægi þess að upplýsa almenning um að stefnu sína og verkefni sem snúa að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
- Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með kauphegðun sinni.
- Vera íslenskum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn frekari áherslu á þessi mál.
Framkvæmd og þátttakendur:
Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til ágúst 2024 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á handahófskennt úrtak úr könnunarhópi Prósents sem inniheldur 15.000 Íslendinga, 18 ára og eldri.
Rannsóknin:
Rannsóknarmódelið samanstendur af sex spurningum sem kanna viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Spurningarnar snúa meðal annars að því hvort að fyrirtæki leggi sitt af mörkum til samfélagsins, hvort þau hugi að velferð viðskiptavina og hvort að þau leitist við að lágmarka sóun.
Markaðir og viðurkenningar:
Í ár voru 47 fyrirtæki mæld á 14 mörkuðum. Viðurkenningar voru veittar á hverjum markaði fyrir sig auk þess sem fyrirtæki sem mældust með afbragðsgóða einkunn hlutu sérstaka viðurkenningu. Fyrirtæki sem fá viðurkenningu munu fá tækifæri til að nota merki Sjálfbærniássins í markaðsstarfi sínu sem undirstrikar frammistöðu þeirra í sjálfbærni að mati almennings. Vinningshöfum verður þannig veittur heiður sem getur styrkt orðspor og ímynd fyrirtækisins.
Fyrirtækin hlutu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð frammistaða.
Mynd 1. Viðmið Sjálfbærniássins
Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var fyrirtæki á alþjóðamarkaði og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var markaðurinn sjávarútvegsfyrirtæki.
Mynd 2. Heildarmeðaltal markaða.
Stigalægsta fyrirtækið hlaut 34 stig af 100 mögulegum og stigahæsta fyrirtækið hlaut 86 stig. Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er Íslensk erfðagreining með 86 stig. Indó mældist með næsthæstu einkunn, 85 stig og Össur með þriðju hæstu einkunnina, 84 stig.
Mynd 3. Meðaltal fyrirtækja
Mynd 4. Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum.
Viðurkenningarhafar 2024
Mynd 5. viðurkenningar veittar vegna Sjálfbærniássins 2024, rannsóknar sem framkvæmd var af Prósenti í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Langbrók og stjórnunarfélagið Stjórnvísi.