Meiri ánægja með síðasta ár en minni jákvæðni gagnvart nýju ári


Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 21. janúar til 2. febrúar 2026 spurðum við eftirfarandi spurninga.

  • Hversu gott eða slæmt fannst þér árið 2025?
  • Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025?

Hvernig var árið 2025?

Þegar spurt var hversu gott eða slæmt fannst þér árið 2025, sögðu 60% svarenda árið 2025 hafa verið gott ár, 22% fannst það hvorki gott né vont og 18% fannst það slæmt ár. 




Mynd 1. Hversu gott eða slæmt fannst þér árið 2025? Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Marktækt fleirum fannst árið 2025 gott samanborið við þegar sama spurning var borin upp fyrir árið 2024, 2023 og 2021.  

 

Mynd 2. Hversu gott eða slæmt fannst þér árið 2025? Svör þeirra sem tóku afstöðu og þróun á milli tímabila.


Hvernig verður 2026?

Þegar spurt var: Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025 þá telja 48% að árið 2026 verði betra í samanburði við árið 2025, 41% telja það verða svipað og 11% telja það verða verra.

Mynd 3. Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025?



Marktækt færri segja að komandi ár (2026 ) verði betra en þegar sama spurning var borin upp fyrir árin 2022, 2024 og 2025.


 


Mynd 4.
Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025. Svör þeirra sem tóku afstöðu og þróun á milli tímabila.

Marktækt fleiri konur en karlar telja að komandi ár verði betra.

image


Mynd 5.
Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025. Svör eftir kyni.



Marktækt fleiri á aldrinum 18 til 44 ára telja að árið verið betra en þau sem eru 45 ára og eldri.

image


Mynd 6. Telur þú að árið 2026 verði betra eða verra fyrir þig í samanburði við árið 2025. Svör eftir aldri


Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 21. janúar til 2. febrúar 2026.

Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.

Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)

Svarhlutfall: 50%