
Indó mælist hæst fyrirtækja í Sjálfbærniásnum 2025
15 fyrirtæki hlutu viðurkenningu Sjálfbærniássins 2025
Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins fór fram í dag í Gestastofu Elliðaárstöðvar, þar sem 15 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir árangur í sjálfbærni. Þetta er í annað sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar, en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni.
Sjálfbærni nær í dag langt út fyrir umhverfismál. Hún snertir stjórnarhætti, mannauð, upplýsingagjöf, jafnrétti, samfélagsþjónustu, ábyrga fjármálastjórnun, tækni og nýsköpun – og ekki síst traust og gagnsæi. Þess vegna taka fjölbreytt fyrirtæki þátt í verkefninu; úr ólíkum atvinnugreinum en með sameiginlega sýn á samfélagslega ábyrgð. Sjálfbærni er ekki lengur sérsvið – heldur heildræn nálgun á starfsemi og tengsl við
samfélagið.
Mælingin er svar við vaxandi kröfum viðskiptavina og annarra hagaðila um aukna ábyrgð fyrirtækja. Sjálfbærniásinn er samstarfsverkefni Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að efla meðvitund og hvetja til framfara í sjálfbærni. Að þessu sinni mælist indó efst allra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum almenningskönnunar.
„Við erum þakklát fyrir þessa viðurkenningu – hún gefur okkur byr undir báða vængi. Frá fyrsta
degi hefur markmið indó verið að hrista upp í fjármálaþjónustu og færa heimilum betri valkosti.
Fyrir okkur snýst sjálfbærni ekki eingöngu um skýrslugjöf og mælikvarða – heldur raunveruleg
áhrif á fólk. Þess vegna höfum við einbeitt okkur að því að byggja bankaþjónustu sem er
einfaldari, réttlátari og hönnuð með hagsmuni viðskiptavina í forgrunni.“
— Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri indó og einn af stofnendum.
Á viðurkenningarhátíðinni kynnti Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, einnig
valdar niðurstöður úr íslensku kynslóðamælingunni 2025:
● 53% einstaklinga telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif
á viðhorf þeirra.
● Hlutdeildin er hæst í aldurshópnum 18–24 ára: 57%.
● 40% þjóðarinnar eru líkleg til að sniðganga fyrirtæki sem ekki uppfylla kröfur þeirra
um sjálfbærni.
„Það er áhugavert að sjá skýrt afstöðu þjóðarinnar til sjálfbærnimála en 40% þjóðarinnar eru
líkleg til að sniðganga fyrirtæki ef þau uppfylla ekki kröfur þeirra um samfélagslega ábyrgð og
sjálfbærni. Með þessari mælingu erum við að varpa ljósi á það hvernig almenningur upplifir
áherslur fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Sjálfbærniásinn gefur þeim tækifæri til að sjá hvernig þau
mælast í samanburði við önnur fyrirtæki og geta tekið upplýstar ákvarðanir um framhaldið.
Jafnframt viljum við styrkja stöðu neytenda sem áhrifaaðila í þessari vegferð,“ segir Trausti
Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents.“
— Trausti Heiðar, framkvæmdastjóri Prósents.
Markmið Sjálfbærniássins:
● Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess
hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
● Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með
skýrari hætti.
● Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin
kauphegðun.
Niðurstöður
Kvarðinn er á bilinu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig
meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð
frammistaða.

Mynd 1. Viðmið Sjálfbærniássins
Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var flugfélög og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst
stig var sjávarútvegsfyrirtæki.

Mynd 2. Heildarmeðaltal markaða.
Stigalægsta fyrirtækið hlaut 35 stig af 100 mögulegum og stigahæsta fyrirtækið hlaut 85 stig.
Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 85 stig. Össur mældist
með næsthæstu einkunn, 83 stig og Íslensk erfðagreining sem var sigurvegari Sjálfbærniássins
2024 með þriðju hæstu einkunnina, 79 stig.

Mynd 3. Meðaltal fyrirtækja.

Mynd 4. Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum.
Framkvæmd og þátttakendur
Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til
apríl 2025 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á könnunarhóp Prósents.
Rannsóknarmódelið á bak við Sjálfbærniásinn
Módelið mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á
sjálfbærari stað. Þessir 4 þættir eru; jörðin, fólkið, stjórnarhættir og velsæld. Spurningar eru úr
módeli sem þróað er og sannprófað af Qualtrics, byggt á 27.000 svörum frá 26 löndum og 16
mörkuðum.
Lykilmælikvarði
Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Jörðin
[Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á
vöru/þjónustu.
Fólkið
[Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum
og þjónustu.
Stjórnarhættir
Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka
sjálfbærni.
Velsæld
[Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.