Ertu 100% sérfræðingur í rannsóknum?
Við erum að bæta í hópinn og vantar talnaspeking með mikla greiningarhæfileika.
Viltu verða hluti af okkur í Prósenti sem er vaxandi fyrirtæki sem starfar fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins. Við leggjum mikla áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð, skipulagshæfileika og framúrskarandi samskiptahæfni.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2023.
Vinsamlegast sendið umsókn og fylgibréf á netfangið edda@prosent.is eða sækið um á Alfreð.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.