
Viðhorf til ráðherraskipta Ragnars Þórs og Ingu Sæland
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 29. janúar til 16. febrúar 2026 var spurt að eftirfarandi:
Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra?
Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra?
Ráðherraskipti Ragnar Þórs Ingólfssonar
38% eru ánægð með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra, 40% eru hvorki ánægð né óánægð og 22% eru óánægð.
Ráðherraskipti Inga Sæland
19% eru ánægð með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra, 42% eru hvorki ánægð né óánægð og 39% eru óánægð.

Mynd vinstra megin. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Mynd hægra megin. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Ráðherraskipti Ragnar Þórs Ingólfssonar – fylgi flokka
76% af þeim sem myndu kjósa Flokk fólksins eru ánægð með ráðherraskipun Ragnars og eru það marktækt fleiri en þau sem myndu kjósa aðra flokka.

Mynd 3. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Ragnar Þór Ingólfsson hafi tekið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra? Svör eftir fylgi flokka.
Ráðherraskipti Inga Sæland – fylgi flokka
62% af þeim sem myndu kjósa Flokk fólksins er ánægð með ráðherraskipun Ingu Sælands og eru það marktækt fleiri en þau sem myndu kjósa aðra flokka.

Mynd 4. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með að Inga Sæland hafi tekið við sem mennta- og barnamálaráðherra? Svör eftir fylgi flokka.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 29. janúar til 16. febrúar 2026.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1.900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.