83% hlynnt því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 21. janúar til 2. febrúar 2026 spurðum við eftirfarandi spurninga.

Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára?

83% svarenda eru hlynnt því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára aldri, 13% eru hvorki hlynnt né andvíg og 4% eru andvíg.  

   

orkudrykkir allir

Mynd 1.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára? Svör þeirra sem tóku afstöðu.


Marktækt færri á aldrinum 18 til 24 ára eru hlynntir banninu samanborið við þau sem eru 35 ára eða eldri.

orkudrykkir aldur


Mynd 2.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára? Svör eftir aldri.

Þau sem eru með 2 börn eða fleiri á heimilinu eru hlynntari banninu en þau sem eru með eitt eða ekkert barn á heimilinu.

orkudrykkir fjöldi barna á heimili

Mynd 3.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára? Svör eftir fjölda barna á heimili.

Fylgjendur Framsóknarflokksins, Viðreisnar, Flokks fólksins og Samfylkingarinnar eru marktækt hlynntari banninu en fylgjendur Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins. 

orkudrykkir fylgi flokka

Mynd 4.  Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir 18 ára? Svör eftir fylgi flokka.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 21. janúar til 2. febrúar 2026.

Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.

Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)

Svarhlutfall: 50%