Færri strengja áramótaheit

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 21. janúar til 2. febrúar 2026 spurðum við eftirfarandi spurninga.

Strengir þú áramótaheit?

17% svarenda stengir áramótaheit en 83% gera það ekki.  Færri strengja áramótaheit í ár en síðustu tvö ár.  
             

Mynd 1.  Strengir þú áramótaheit? Svör þeirra sem tóku afstöðu og þróun á milli tímabila


Yngsti aldurshópurinn, 18 til 24 ára, eru marktækt líklegri en aðrir aldurshópar til að strengja áramótaheit.




Mynd 2.  Strengir þú áramótaheit? Svör eftir aldri.  

Konur eru marktækt líklegri en karlar til að strengja áramótaheit.
 

Mynd 3.  Strengir þú áramótaheit? Svör eftir kyni


Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 21. janúar til 2. febrúar 2026.

Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.

Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)

Svarhlutfall: 50%