
8% þjóðarinnar sem hefur ekki verið í opnu sambandi er opið fyrir því
Könnun um viðhorf til opinna samband
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 28. mars til 15. apríl 2025 var spurt að eftirfarandi:
Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum?
3% svarenda hafa verið í opnu sambandi, 8% hafa ekki verið í opnu sambandi en er opið fyrir því, 81% hafa ekki áhuga á að vera opnu sambandi og 6% hafa ekki áhuga á að vera í sambandi.
Mynd 1 Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum? Niðurstöður þeirra sem tóku afstöðu.
Marktækt fleiri konur eða 84% hafa ekki áhuga á að vera í opnu sambandi og 78% karla. Marktækt fleiri karlar eða 11% hafa ekki verið í opnu sambandi en eru opnir fyrir því og 6% karla.
Mynd 2 Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum? Niðurstöður eftir kyni.
86% þeirra sem eru 18-24 ára hafa ekki áhuga á að vera í opnu samband og er það marktækt fleiri en þau sem eru 25-44 ára.
Mynd 3. Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum? Niðurstöður eftir aldri
3% þeirra sem eru í hjónabandi eru í opnu sambandi eða hafa áður verið í opnu sambandi sem er marktækt lægra en þau sem eru einhleyp en þar er hlutfallið 6%. 4% þeirra sem eru í hjónabandi hafa ekki áhuga á að vera í sambandi.
Mynd 4. Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum? Niðurstöður eftir hjúskaparstöðu.
15% þeir sem myndu kjósa aðra flokka en fimm stærstu flokkana hafa ekki verið í opnu sambandi en eru opin fyrir því sem er hærra hlutfall en hjá þeim sem myndu kjósa Samfylkinguna, Sjáflstæðisflokkinn og Flokk fólksins. Engin sem myndi kjósa Miðflokkin er í opnu sambandi eða hafa áður verið í opnu sambandi.
Mynd 5. Hvað af eftirfarandi á best við afstöðu þína gagnvart opnum samböndum? Niðurstöður eftir fylgi flokka.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 28. mars til 15. apríl 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.300 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 51%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.