Framkvæmdaþing Húsasmiðjunnar 2024 


Morgunverðarfundur í Kaldalóni, Hörpu, fimmtudaginn 21. mars kl. 8-11


Á fundinum verða áhugaverð erindi; m.a. um þróun fasteigna markaðarins, áhrif væntanlegra breytinga á byggingareglugerðum, verkefni framundan og skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins.
Fagfólk, byggingaverktakar, arkitektar, verkfræðingar, fasteignasalar og aðrir framkvæmdaaðilar sem tengjast og hafa áhuga á byggingariðnaði eru hvattir til að mæta.

Aðgangur er ókeypis en takmarkað sætaframboð. 

Skráning er nauðsynleg á vef Húsasmiðjunnar
.

Dagskrá 8:00 – 11:00

08:00 – 08:30
Léttar veitingar

08:30 – 08:35
Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar býður gesti velkomna.

 

08:35 – 08:50
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur flytur ávarp. Hröðun byggingaframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu

 

08:50 – 09:10
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Horfur á fasteignamarkaði til ársins 2026

 

09:10 – 09:30
Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Stiku. Hvernig má stuðla að vistvænni byggð með skipulagi? Nýútgefnar leiðbeiningar Skipulagsstofnunar og SSH fjalla um hvernig hægt er að ná markmiðum um vistvænni byggð í skipulagi reita og bæjarrýma.

 

09:30 – 09:50
Elín Þórólfsdóttir, Sérfræðingur í vistvænni mannvirkjagerð hjá HMS. Áhrif nýrrar reglugerðar um lífsferilsgreiningar á byggingarframkvæmdir. Kynning á upplýsingum um innleiðingu lífsferilsgreininga mannvirkja í byggingarreglugerð, með áherslu á það hvernig þessar breytingar geta haft jákvæð áhrif á byggingariðnaðinn og stuðlað að aukinni sjálfbærni.

 

09:50 – 10:10
Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá Lendager. Hringrás byggingarefna. Kvöð eða tækifæri fyrir byggingaraðila? Er hægt að byggja umhverfisvænt og hagkvæmt ? Hvernig náum við markmiðum okkar í umhverfismálum samhliða því að byggja fyrir vaxandi mannfjölda á næstu árum?

 

10:10 – 10:30
Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents. Hvar og í hvers konar húsnæði vilja Íslendingar búa á næstu 5 árum? Prósent kannar viðhorf þjóðarinnar þegar kemur að húsnæðismálum og svarar spurningum eins og hvar Íslendingar vilji búa, hverjir gera ráð fyrir að flytja erlendis, hvers konar húsnæði Íslendingar vilji búa í og viðhorf þeirra til vistvæns húsnæðis.

 

10:30 – 10:45
Umræður, spurningar úr sal.

Fundarstjórn. 
Emilía Borgþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni.