Samfylkingin með mesta fylgið  

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 16. til 30. september 2025 var spurt að eftirfarandi:

Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?

Af þeim sem tóku afstöðu þá myndu 32,0% kjósa Samfylkinguna, 18,3 Sjálfstæðisflokkinn, 14,4% Viðreisn, 9,9% Miðflokkinn, 7,6% Flokk fólksins, 7,1% Framsóknarflokkinn, 5,2% Pírata, 2,7% Sósíalistaflokkinn, 2,1% Vinstri græn og 0,7% Lýðræðisflokkinn.

image

Mynd 1.  Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?  Svör þeirra sem tóku afstöðu.

Vikmörk – 95% Öryggisbil

image

Mynd 2.  Vikmörk fyrir fylgi flokka miðað við 95% öryggisbil.

Niðurstöður eftir bakgrunni

Fylgi Samfylkingarinnar er marktækt meira hjá konum en körlum eða 37% á móti 28%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er marktækt meira hjá körlum en konum eða 21% á móti 15%. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá körlum en konum, eða 13% á móti 6%.

image


Mynd 3
.  Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir kyni.  

Fylgi Viðreisnar er marktækt meira hjá einstaklingum á aldrinum 35 til 54 ára í samanburði við 55 ára og eldri. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá 18 til 34 ára en þau sem eldri eru. Fylgi Flokks fólksins er marktækt meira hjá 35 ára og eldri en hjá þeim sem yngri eru. Fylgi Pírata er marktækt meira hjá 18 til 34 ára en hjá þeim sem eru 55 ára og eldri.

image

Mynd 4 .  Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir aldri.
  


Fylgi Samfylkingarinnar er marktækt meira hjá þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni eða 35% á móti 26%.  Fylgi Sjálfstæðisflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu eða 23% á móti 16%. Fylgi Flokk fólksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu eða 12% á móti 5% og fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu eða 12% á móti 5%.

fylgi flokka búseta

Mynd 5 . Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir búsetu.

Fylgi Samfylkingarinnar er marktækt meira hjá þeim sem eru með háskólapróf en þau sem eru með grunnskólapróf, framhaldsskólapróf eða iðnmenntun eða 36% á móti 28%.  Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá þeim sem eru ekki með háskólapróf eða 13% á móti 7% þeirra sem eru með háskólapróf. Fylgi Framsóknarflokksins er meira hjá þeim sem eru með háskólapróf eða 9% á móti 5% hjá þeim sem eru ekki með háskólapróf.

image

Mynd 6. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir menntun.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 16. til 30. september 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu