
Meirihluti hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 16. til 30. september 2025 var spurt að eftirfarandi:
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú aðskilnaði ríkis og kirkju?
52% svarenda eru hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju, 27% eru hvorki hlynnt né andvíg og 21% eru andvíg.

Mynd 1. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú aðskilnaði ríkis og kirkju? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Þau sem eru á aldrinum 18 til 24 ára eru marktækt hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þau sem eru 35 ára og eldri. 65 ára og eldri eru marktækt andvígari aðskilnaði en þau sem eru 54 ára og yngri.

Mynd 2.Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú aðskilnaði ríkis og kirkju? Svör eftir aldri.
Þau sem búa í á höfuðborgarsvæðinu er marktækt hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þau sem búa á landsbyggðinni.

Mynd 3 .Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú aðskilnaði ríkis og kirkju? Svör eftir búsetu.

Mynd 4 .Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú aðskilnaði ríkis og kirkju? Svör eftir fylgi flokka.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 16. til 30. september 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.