
Prósent kynnir áhugaverðan fyrirlestur um kulnun Íslendinga á vinnumarkaði 2025
Fjarfundur, öllum opin
Miðvikudaginn 15. október 2025 frá kl. 08.30 til 09.15
Fyrirlesturinn sem haldinn er í samstarfi við Stjórnvísi og Mannauð verður á fjarfundarformi og er öllum opinn.
Skráning: Skráningarsíða
Miðvikudaginn 15. október 2025 frá klukkan 8.30 til 9.15 kynnum við hjá Prósenti niðurstöður rannsóknar á kulnun Íslendinga á vinnumarkaði. Prósent hefur framkvæmt þessa rannsókn í janúar ár hvert síðan 2020, og nú eru komin samanburðargögn frá 2020 til 2025 – sex ára dýrmæt saga sem gefur innsýn í kulnun Íslendinga á vinnumarkaðinum.
Niðurstöður 2025, leiddu meðal annars í ljós að:
- 37% starfsfólks finnst þau vera útkeyrð í lok vinnudags einu sinni í viku eða oftar,
- 46% starfsfólks finna fyrir þreytu þegar þau fara á fætur á morgnana og þurfa að takast á við nýjan vinnudag, einu sinni í viku eða oftar.
- Afköst í starfi minnka marktækt á milli ára.
Tilfinningaleg örmögnun
Mér finnst ég vera útkeyr(ð/ður/t) í lok vinnudags.
37% starfsfólks finnst þau vera útkeyrð í lok vinnudags einu sinni í viku eða oftar, 26% nokkrum sinnum í mánuði og 36% einu sinni í mánuði eða sjaldnar.

Mynd 1. Mér finnst ég vera útkeyr(ð/ður/t) í lok vinnudags.
Tilfinningaleg örmögnun
Ég finn fyrir þreytu þegar ég fer á fætur á morgnana og þarf að takast á við nýjan vinnudag.
46% starfsfólks finna fyrir þreytu þegar þau fara á fætur á morgnana og þurfa að takast á við nýjan vinnudag, einu sinni í viku eða oftar, 19% finna fyrir þreytu nokkrum sinnum í mánuði og 36% mánaðarlega eða sjaldnar.

Mynd 2. Ég finn fyrir þreytu þegar ég fer á fætur á morgnana og þarf að takast á við nýjan vinnudag. Þróun á milli tímabila.
Afköst í starfi – leggja af mörkum
Árið 2023 fannst 67% þau vera að leggja mikið af mörkum til starfsemi vinnustaðar daglega og er nú hlutfallið 60% fyrir árið 2025. Fjöldi vinnudaga sem svarendur leggja mikið af mörkum til starfsemi vinnustaðarins lækkar marktækt á milli tímabila úr 182 dögum í 174.

Mynd 3. Mér finnst ég leggja mikið af mörkum til starfsemi vinnustaðarins. Þróun á milli tímabila.
Um framkvæmd
Prósent hefur framkvæmt rannsókn á kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði frá árinu 2020. Rannsóknarmódelið sem notast er við til mælinga er 16 spurninga útgáfa af Maslach kulnunarmódelinu (The Maslach Burnout Inventory, MBI). MBI er fyrsti vísindalega þróaði mælikvarðinn fyrir kulnun og er mikið notaður víða um heim. Mældar eru þrjár víddir; tilfinningaleg örmögnun (e. emotional exhaustion), tortryggni (e. cynicism) og afköst í starfi (e. professional efficacy).
Hver spurning er greind eftir starfi, fjölda ára í núverandi starfi, fjölda vinnustunda á viku, markaði (almennur, opinber og þriðji geirinn), kyni, aldri, búsetu, menntunarstigi, fjölda barna á heimili og tekjum. Prósent hefur framkvæmt rannsóknina í janúar ár hvert síðan 2020 og er nú kominn samanburður á niðurstöðum fyrir árin 2020, 2021, 2022, 2023, 2024 og 2025. Byggir hver rannsókn á um 900 svörum einstaklinga 18 ára og eldri á öllu landinu sem eru á vinnumarkaðinum.