Kulnun Íslendinga árið 2023

Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi, Prósent og Stjórnvísi kynna spennandi fyrirlestur um kulnun Íslendinga á vinnumarkaði.

Miðvikudaginn 4. október frá 08:30 til 09:15 í Háskóla Reykjavíkur eða í streymi. 

Fyrirlesari

Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents mun kynna helstu niðurstöður.

Um rannsóknina

Prósent hefur framkvæmt rannsókn á kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði frá árinu 2020.
Rannsóknarmódelið sem notast er við til mælinga er 16 spurninga útgáfa af Maslach kulnunarmódelinu (The Maslach Burnout Inventory, MBI). MBI er fyrsti vísindalega þróaði mælikvarðinn fyrir kulnun og er mikið notaður víða um heim. Mældar eru þrjár víddir; tilfinningaleg örmögnun (e. emotional exhaustion), tortryggni (e. cynicism) og afköst í starfi (e. professional efficacy).

Hver spurning er greind eftir starfi, fjölda ára í núverandi starfi, fjölda vinnustunda á viku, markaði (almennur, opinber og þriðji geirinn), kyni, aldri, búsetu, menntunarstigi, fjölda barna á heimili og tekjum.

Prósent hefur framkvæmt rannsóknina í janúar ár hvert síðan 2020 og er nú komin samanburður á niðurstöðum fyrir árin 2020, 2021, 2022 og 2023.

Byggir hver rannsókn á um 900 svörum einstaklinga 18 ára og eldri á öllu landinu sem eru á vinnumarkaðinum.

Niðurstöður síðasta árs

Niðurstöður könnunar 2022, leiddu meðal annars í ljós að 28% Íslendinga 18 ára og eldri á vinnumarkaði finnst þeir vera tilfinningalega úrvinda vegna vinnu sinnar einu sinni í viku eða oftar. Það verður áhugavert að vita í hvaða átt þessi þróun stefnir.

Skráning HR Stofa M119

Fyrir þau sem vilja mæta á staðinn: Háskólinn í Reykjavík, 1. hæð, stofa M119. 

Fyrir þau sem vilja horfa í streymi: Streymt verður beint frá fyrirlestrinum í gegnum Outlook: https://rb.gy/2aa74

Skráning fyrir streymi

tilfinningalega úrvinda

 Hafa samband 

Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: prosent@prosent.is