Íslenska ánægjuvogin 2022
Íslenska ánægjuvogin fyrir árið 2022 verður afhent á Grand Hótel og í beinni dagskrá, föstudaginn 13. janúar 2023 kl 08:30
Þetta er í 24 skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti og að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir 14 atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri. Það sem gerir ánægjuvogina einstaka er að enginn veit hvenær mælingin fer fram né hvaða markaðir eru mældir hverju sinni.
Streymt verður frá viðburðinum og er skráning á hér:
https://www.stjornvisi.is/is/
Um Íslensku ánægjuvogina
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósent. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og þjónusta. Mæling sem þessi er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um.