Verslunarpúlsinn
Prósent kynnir Verslunarpúlsinn, glænýtt og öflugt tracking-mælaborð sem veitir skýra og reglulega innsýn í kauphegðun Íslendinga.
Verslunarpúlsinn sýnir allt það helsta sem fyrirtæki þurfa að vita um markaði og neytendur: kauptíðni, hvar er verslað, meðalupphæð, NPS og fleiri lykilmælikvarða. Gögnin ná til fjölbreyttra markaða, meðal annars matvöru, skyndibita, ferðalaga, fatnaðar, skófatnaðar og snyrtivara, svo eitthvað sé nefnt.
Niðurstöður eru uppfærðar mánaðarlega og byggja hver mæling á 400 svörum, sem tryggir stöðuga, áreiðanlega og samanburðarhæfa mynd af þróun markaða yfir tíma.
Verslunarpúlsinn er hannaður til að styðja við ákvarðanatöku, stefnumótun og markaðsstarf – með skýrum gögnum, aðgengilegri framsetningu og raunverulegri innsýn í hegðun neytenda.


Hvað sýnir mælaborðið?
Verslunarpúlsinn hjálpar þér að sjá ekki bara hvað gerðist, heldur setja það í samhengi við markaðinn.
Í mælaborðinu má meðal annars sjá:
- Markaðshlutdeild – hverjir leiða markaðinn, hverjir eru að vaxa og hverjir dragast aftur úr.
- Hvar neytendur hafa verslað síðasta mánuðinn og hvar þeir versluðu síðast.
- Kaupupphæðir og tíðni – hversu oft og fyrir hversu mikið er verslað.
- Hvort síðustu kaup fóru fram á netinu eða á staðnum.
- Meðmælaskor (NPS) fyrirtækja.
- Ástæður meðmælaskors – hvað liggur að baki ánægju eða óánægju viðskiptavina.
- Markhópagreiningar eftir meðal annars kyni, aldri og búsetu.
- Þróun yfir tíma eftir mánuðum, ársfjórðungum og árum.
Þannig getur fyrirtækið borið eigin stöðu saman við markaðinn og samkeppnina – og séð hvar tækifærin liggja.
Nánari upplýsingar
Þátttakendur í könnuninni eru Íslendingar 18 ára og eldri sem valdir eru af handahófi. Gögnin eru vigtuð m.t.t. kyns, aldurs og búsetu til að hægt sé að alhæfa um niðurstöður með 95%.
Gögnin eru greind eftir sjö bakgrunnsbreytum; kyni, aldri, búsetu, stöðu á vinnumarkaði, hjúskaparstöðu, fjölda barna á heimili og tekjum.
Hvaða markaðir eru mældir?
Verslunarpúlsinn nær til sjö markaða:
- Matvara og dagvara
- Skyndibiti
- Föt, skór og fylgihlutir
- Snyrtivörur, heilsuvörur og lyf
- Raftæki og heimilistæki
- Ferðalög
- Byggingavara og garður
Um 140 fyrirtæki eru mæld samtals og hægt er að fá aðgang að einum eða fleiri mörkuðum – eða öllum mörkuðum Verslunarpúlsins.
Með kaupum á mælaborðinu fylgir kynning í klukkustund, á helstu niðurstöðum þar sem við förum yfir hvernig þitt fyrirtæki getur sem best nýtt sér niðurstöðurnar.

Afhverju verslunarpúlsinn?
Markaðir breytast hratt. Nýir keppinautar koma inn, kauphegðun breytist og væntingar neytenda þróast. Án samanburðar við markaðinn er hætta á að fyrirtæki bregðist við breytingum of seint – eða taki ákvarðanir út frá aðeins hluta myndarinnar.
Verslunarpúlsinn er hannaður til að hjálpa fyrirtækjum að vera á undan breytingunum, ekki á eftir þeim og getur nýst við:
- Stefnumótun og markaðsáætlanagerð
- Greiningu á samkeppnisstöðu
- Mati á árangri markaðsaðgerða,
- Markhópagreiningu og upplifun viðskiptavina
- Við leit að vaxtartækifærum
Markmiðið er að gefa stjórnendum betri forsendur til að taka réttar ákvarðanir.
Viltu vita meira?
Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt fá verðtilboð eða frekari upplýsingar um þjónustuna.