
Sjálfbærniásinn 2026 viðurkenningarhátíð, 6. maí
Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun. Þessi mæling er svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standa Prósent, Langbrók og Stjórnvísi
Viðurkenningarhátíð í beinu streymi miðvikudaginn 6. maí 2026, kl. 9.15-10.00
Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins þar sem fjöldi fyrirtækja fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni verður haldin miðvikudaginn 6. maí klukkan 9.15 til 10.00 í Gestastofu, Elliðaárstöð.
Hægt verður að fylgjast með dagskrá í beinu streymi á visi.is og mbl.is.
Dagskrá
9.15 – 9.45 – Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents kynnir rannsóknarmódelið og veitir þeim fyrirtækjum viðurkenningu sem hæst eru á sínum markaði.
9.45 – 10.00 – Soffía S. Sigurgeirsdóttir , Langbrók stýrir pallborðsumræðum
Sjálfbærniásinn er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni í íslensku samfélagi og hvetur fyrirtæki til að standa sig enn betur í þessum mikilvægu málum. Nánar um Sjálfbærniásinn
Niðurstöður verður hægt að eignast að viðurkenningarhátíð lokinni
Sjálfbærniásinn inniheldur 5 spurningar ásamt aukaspurningu um áhrif sjálfbærni sem eru greindar niður á bakgrunnsbreytur. Niðurstöður eru settar fram í rafrænu mælaborði og eru mæld fyrirtæki pr markað kynnt saman. Prósent sér um sölu og kynningu á niðurstöðum.
Viðurkenningarhátíð 2025

Pallborðsumræður frá viðurkenningarhátíð 2025.
Hlekkur frá viðurkenningarhátíð 2025 : https://youtube.com/live/GGekmqpYMts?feature=share
Viðurkenningarhátíð 2024
