
Tveir þriðju finnst að Ísland ætti að hætta við þátttöku í Eurovision ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða
Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 16. til 30. september 2025 var spurt að eftirfarandi:
Finnst þér að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða?
67% svarenda finnst að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða og 33% finnst það ekki.

Mynd 1. Finnst þér að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða? Svör þeirra sem tóku afstöðu.
Konur vilja marktækt frekar að Ísland hætti við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða en karlar.

Mynd 2. Finnst þér að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða? Svör eftir kyni.
Þau sem búa á landsbyggðinni vilja marktækt frekar að Ísland hætti við þátttöku heldur en þau sem búa á höfuðborgarsvæðinu.

Mynd 3. Finnst þér að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða? Svör eftir búsetu.
Enginn marktækur munur er á afstöðu eftir aldri.

Mynd 4. Finnst þér að Ísland ætti að hætta við að taka þátt í Eurovision á næsta ári ef Ísrael verður meðal þátttökuþjóða? Svör eftir aldri.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 16. til 30. september 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2.000 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%
Um könnunarhóp Prósents
Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu