23% heimila hafa verslað á Shein á síðastliðnum 12 mánuðum  

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 14. til 30. júlí 2025 var spurt að eftirfarandi:

Hefur þú eða þitt heimili keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum?

23% svarenda hafa keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum, 9% hafa ekki keypt á síðastliðnum 12 mánuðum en hafa keypt þar áður og 68% hefur aldrei keypt í gegnum Shein.  
 
     

   Mynd 1.  Hefur þú eða þitt heimili keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum?

Marktækt fleiri konur en karlar hafa verslað á Shein, 31% kvenna og 14% karla.

Mynd 2.  Hefur þú eða þitt heimili keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum?

Þau sem eru á aldrinum 35-44 ára versla frekar á Shein en þau sem eldri eru

image

Mynd 3.  Hefur þú eða þitt heimili keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum? Svör eftir aldri.

Þau sem búa á landsbyggðinni eru marktækt líklegri til að hafa keypt í Shein en þau sem búa á höfuðborgarsvæðinu.


Mynd 4.  Hefur þú eða þitt heimili keypt vöru(r) í gegnum kínversku netverslunina Shein á síðastliðnum 12 mánuðum? Svör eftir búsetu.


Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 14. til 30. júlí 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 2200 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 51%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.