81% hafa áhyggjur af stríðsátökum 

Í könnun sem Prósent framkvæmdi dagana 1. til 21. júlí 2025 var spurt að eftirfarandi:

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að stríðsátök muni aukast í heiminum á næstu árum?

Af þeim sem tóku afstöðu þá hafa 81% miklar áhyggjur af því að stríðsátök muni aukast í heiminum á næstu árum, 12% hafa hvorki miklar eða litlar áhyggjur og 7% hafa litlar áhyggjur.
     

image

Mynd 1. Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að stríðsátök muni aukast í heiminum á næstu árum? Svör þeirra sem tóku afstöðu.


Marktækt munur er á skoðunum eftir kyni.  88% kvenna hafa miklar áhyggjur og 74% karla.

image


Mynd 2.
Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af því að stríðsátök muni aukast í heiminum á næstu árum? Svör eftir kyni.


Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 1. til 21. júlí 2025.
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1950 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 50%

Um könnunarhóp Prósents

Í dag eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.