55% þjóðarinnar óánægð með áform Landsbankans um kaupa á tryggingafélaginu TM

 

Netkönnun Prósents á meðal könnunarhóps, Gögnum var var safnað frá 20. til 27. mars 2024. Spurt var:

 

Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ertu með áform Landsbankans um kaup á tryggingafélaginu TM?

 

55% svarenda eru óánægð með áform Landsbankans um kaup á tryggingafélaginu TM, 32% svara hvorki né og 13% eru ánægð.


landsbanki allir

Mynd 1. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ertu með áform Landsbankans um kaup á tryggingafélaginu TM? Svör þeirra sem tóku afstöðu.

 

Marktækur munur er á afstöðu kynja, 59% kvenna eru óánægðar með áformin og 51% karla. 6% kvenna eru ánægð með áformin en 18% karla.

landsbanki kyn

Mynd 2. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ertu með áform Landsbankans um kaup á tryggingafélaginu TM? Svör eftir kyni.

Mesta óánægjan er hjá aldurshópnum 35-44 ára og eru þau marktækt óánægðari heldur en þau sem yngri eru og þau sem eru 45-54 ára.

landsbanki aldur

Mynd 3. Hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ertu með áform Landsbankans um kaup á tryggingafélaginu TM? Svör eftir aldri.


Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 20. febrúar 2024 til 27. Mars 2024
Aðferð: Netkönnun meðal könnunarhóps Prósents.
Úrtak: 1900 (einstaklingar 18 ára og eldri)
Svarhlutfall: 51%
Gögn eru vigtuð til að úrtak endurspegli álit þjóðarinnar. Tekið er tillit til kyns, aldurs og búsetu.