20% stjórnenda á Íslandi segja að starfsfólki muni fækka á næstu 12 mánuðum 

Í könnun sem Prósent framkvæmdi 13. til 29. október 2025 á meðal stjórnenda íslenskra fyrirtækja var spurt:  Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum?
Prósent hefur kannað viðhorf stjórnenda til ‏þessarar spurningar síðan árið 2018.

Afstaða stjórnendur 

20% stjórnenda segja að starfsfólki muni fækka og hefur ‏‏að hlutfall ekki verið svo hátt síðan árið 2020 ‏þegar 18% stjórnenda töldu að starfsfólki myndi fækka. Það sem einkenndi árið 2020 var Covid tímabilið sem hafði mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf.  Á móti kemur að 20% stjórnenda telja að starfsfólki muni fjölga en það hlutfall lækkar marktækt á milli ára úr 33%. 59% stjórnenda telur að fjöldinn muni standa í stað.

afstaða allir samsett

Mynd 1.  Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Mynd til vinstri s‎ýnir svör allra og mynd til hægri sýnir svör þeirra sem tóku afstöðu og hafa valmöguleikar verið sameinaðir.

fækkun fjölgun þróun

Mynd 2.  Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Þróun síðan 2018.

Atvinnugreinar

Stjórnendur fyrirtækja sem eru í atvinnuflokkunum rekstur veitinga- og gististaða, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og iðnaði telja að starfsfólki muni fækka einna mest.  24% stjórnenda fyrirtækja í rekstri veitinga og gististaða segja að starfsfólki muni fækka á næstu 12 mánuðum á meðan 10% segja að þeim muni fjölga.  Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð telja 27% stjórnenda að starfsfólki muni fækka en 17% að starfsfólki muni fjölga.  31% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði telur að starfsfólki muni fækka og 18% telja að því muni fjölga.

fækkun fjölgun atvinnugreinar

Mynd 3.  Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Niðurstöður eftir atvinnugreinum.

Aðsetur

Þegar horft er til aðseturs fyrirtækja eru marktækt fleiri stjórnendur fyrirtækja í Reykjavík sem telja að starfsfólkimuni fjölga samanborið við landsbyggðina.  24% stjórnenda fyrirtækja í Reykjavík telja að starfsfólki muni fjölga á móti 15% á landsbyggðinni.  

fækkun fjölgun aðsetur


Mynd 4.
  Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Niðurstöður eftir aðsetri.

Framkvæmd

Gögnum var safnað frá 13. til 29. október 2025
Aðferð: Netkönnun meðal stjórnendahóps Prósents.
Úrtak: 1300 (fjöldi fyrirtækja).
Svarhlutfall: 50%

Um stjórnendahóp Prósents

Þátttakendur eru stjórnendur lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja á Íslandi (forstjórar, framkvæmda- og fjármála­stjórar). Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda.