
20% stjórnenda á Íslandi segja að starfsfólki muni fækka á næstu 12 mánuðum
Í könnun sem Prósent framkvæmdi 13. til 29. október 2025 á meðal stjórnenda íslenskra fyrirtækja var spurt: Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum?
Prósent hefur kannað viðhorf stjórnenda til þessarar spurningar síðan árið 2018.
Afstaða stjórnendur
20% stjórnenda segja að starfsfólki muni fækka og hefur að hlutfall ekki verið svo hátt síðan árið 2020 þegar 18% stjórnenda töldu að starfsfólki myndi fækka. Það sem einkenndi árið 2020 var Covid tímabilið sem hafði mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf. Á móti kemur að 20% stjórnenda telja að starfsfólki muni fjölga en það hlutfall lækkar marktækt á milli ára úr 33%. 59% stjórnenda telur að fjöldinn muni standa í stað.

Mynd 1. Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Mynd til vinstri sýnir svör allra og mynd til hægri sýnir svör þeirra sem tóku afstöðu og hafa valmöguleikar verið sameinaðir.

Mynd 2. Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Þróun síðan 2018.
Atvinnugreinar
Stjórnendur fyrirtækja sem eru í atvinnuflokkunum rekstur veitinga- og gististaða, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og iðnaði telja að starfsfólki muni fækka einna mest. 24% stjórnenda fyrirtækja í rekstri veitinga og gististaða segja að starfsfólki muni fækka á næstu 12 mánuðum á meðan 10% segja að þeim muni fjölga. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð telja 27% stjórnenda að starfsfólki muni fækka en 17% að starfsfólki muni fjölga. 31% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði telur að starfsfólki muni fækka og 18% telja að því muni fjölga.

Mynd 3. Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Niðurstöður eftir atvinnugreinum.
Aðsetur
Þegar horft er til aðseturs fyrirtækja eru marktækt fleiri stjórnendur fyrirtækja í Reykjavík sem telja að starfsfólkimuni fjölga samanborið við landsbyggðina. 24% stjórnenda fyrirtækja í Reykjavík telja að starfsfólki muni fjölga á móti 15% á landsbyggðinni.

Mynd 4. Telur þú að starfsfólki í þínu fyrirtæki muni fjölga eða fækka á næstu 12 mánuðum? Niðurstöður eftir aðsetri.
Framkvæmd
Gögnum var safnað frá 13. til 29. október 2025
Aðferð: Netkönnun meðal stjórnendahóps Prósents.
Úrtak: 1300 (fjöldi fyrirtækja).
Svarhlutfall: 50%
Um stjórnendahóp Prósents
Þátttakendur eru stjórnendur lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja á Íslandi (forstjórar, framkvæmda- og fjármálastjórar). Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda.